Hvað sem raular og tautar verður Hamar á toppnum yfir hátíðarnar í Iceland Express deild kvenna svo það er ekki úr vegi að skora á fyrirliðann sjálfann, Írisi Ásgeirsdóttur, í 1 á 1 hér á Karfan.is. Keppnismanneskjan Íris var ekki lengi að taka áskoruninni og við fáum m.a. að öfunda Írisi aðeins sem er á leið á leik í NBA boltanum um helgina!
Ljósmynd/ Þorsteinn Eyþórsson: Íris í leik gegn Snæfell fyrr á leiktíðinni