Næsta stoppistöð í sumaryfirferð 1. deildar karla er Laugarvatn og þar sigur Pétur Sigurðsson fyrir svörum en Pétur stýrði Laugdælum upp úr 2. deild á síðustu leiktíð. Laugdælir unnu deildina eftir spennandi úrslitaleik gegn Leikinsmönnum, lokatölur 84-76.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
29 06 2010 | 10:19
Sumarið og 1. deild: Laugdælir
,,Liðið hjá mér verður meira og minna óbreytt frá því í fyrra, þó missi ég 2-3 leikmenn sem voru að útskrifast. Kemur það svo í ljós með sumrinu hvort það bætist eitthvað við hópinn,” sagði Pétur enda ekki á vísann að róa í leikmannamálum á Laugarvatni þar sem liðsmenn Laugdæla eru flestir hverjir aðfluttir námsmenn.
,,Ég byrja með æfingar um miðjan ágúst og svo fer allt á fullt í byrjun september, því þá eru allir leikmenn komnir í skólann. Leikmennirnir mínir eru hér og þar um landið og hef ég gert kröfu um að þeir komi í góðu líkamlegu ástandi í ágúst. Annars leggst 1. deildin vel í menn og eru leikmenn mínir tilbúnir að leggja á sig mikla vinnu til að ná árangri í vetur. Mikil samstaða er í hópnum og metnaðurinn mikill,” sagði Pétur
Ljósmynd/ www.sunnlenska.is – Laudælir fögnuðu vel og innilega eftir sigurinn í 2. deild.
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila