Nú síðasta mánudag fékkst það staðfest að landsliðsmaðurinn efnilegi Haukur Helgi Pálsson hefði komist að samkomulagi við bandaríska háskólann Maryland. Þar mun Haukur vera næstu fjögur árin við nám og körfuboltaiðkun og hefur þetta mál vakið verðskuldaða athygli enda Maryland einn sterkasti körfuboltaskóli Bandaríkjanna. Karfan.is náði tali af Hauk Helga sem hefur leikið í vetur með Montverde miðskólanum í Flórída ásamt því að stunda þar nám en Montverde er á meðal bestu miðskóla Bandaríkjanna í körfubolta.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
13 03 2010 | 12:23
Spenntur fyrir því að mæta þeim bestu
,,Að vera hérna í Montverde er búið að vera ákveðin lífsreynsla, vera með svona svakalega ákveðinn þjálfara sem lætur þig heyra það fyrir minnstu hluti og líka ef þú ert eitthvað að slaka á á æfingum, en það átti aldrei við um mig að slaka á. Ég er víst með það orðspor á mér hérna að vera alltaf á fullu og harður sem nagli,“ sagði Haukur gamansamur í samtali við Karfan.is.
,,Körfuboltinn hérna er allt öðruvísi en heima, það er allt miklu hraðara hérna og engin skotklukka þannig að maður getur endað með því að vera í vörn í heila mínútu án þess að stoppa, það tekur á,“ sagði Haukur sem á eitt mót eftir með Montverdeskólanum og það er National Championship í High School sem fram fer í höfuðborginn Washington dagana 1.-3. apríl næstkomandi.
Haukur hefur þegar komið til Maryland og farið á leik með liðinu ásamt því að skoða aðstæður og hann var hrifinn: ,,Að koma til Maryland var bara geðveikt og skólinn gerir t.d. miklar kröfur um nám og allir í liðinu fá einkakennara og ég eins og allir aðrir í liðinu bað um að það yrði kvenmaður,“ sagði Haukur á léttu nótunum en hann mun þurfa að fara í sumarskóla við Maryland háskólann og það gangi yfir alla þá sem komi til liðs við skólann á skólastyrk. ,,Þannig að ég verð kominn aftur til Maryland í júlí á þessu ári,“ hélt Haukur sem býst við mikilli baráttu um hverja einustu mínútu í liði Maryland Terps.
,,Ég sé mig á mínu fyrsta ári reyna að fá mínútur og þjálfarinn tjáði mér auðvitað að þetta væri allt undir sjálfum mér komið. Auðvitað stefnir maður á eins margar mínútur á fyrsta ári og hægt er og ég get ekki beðið um meira en mínútur til að sýna mig á fyrsta árinu. Aðalmarkmiðið er svo náttúrulega að vera kominn í byrjunarliðið einhvern tíman,“ sagði Haukur sem um daginn var viðstaddur viðureign Maryland og Duke ásamt 18.000 öðrum áhorfendum.
,,Leikurinn sem ég sá var svakalegur, þvílík læti og fáránleg stemmning. Ég ræddi við einhverja nemendurna og spurði hvort þetta væri alltaf svona og þeir sögðu að á öllum ACC deildarleikjum væri þetta svona,“ sagði Haukur og var ekkert að leyna spennunni.
,,Ég er þvílíkt spenntur fyrir þessu verkefni og spila í svona sterkri deild og fá að mæta þeim bestu í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.“
- Fannar: Þarf einhvern sem getur sagt mér að halda kjafti
- FKÍ skartar nýju kennitákni
- Diaw tekur við af Tony Parker
- Leikið í sumardeildinni
- Kapteinn Kirk tilbúinn að axla sitt hlutverk í nýju liði
- Chris Paul skipti um skoðun – ætlar að vera áfram í New Orleans
- Yao gæti lagt skóna á hilluna
- Hvað gerist í dag hjá Chris Paul?
- Atli Örn til liðs við Blika
- Peningarnir flæða í Miami – hefur þú smakkað LeBron hamborgara?
Senda frétt
Prenta
Deila