Landsliðskonurnar Helena Sverrisdóttir og María Ben Erlingsdóttir voru í eldlínunni um helgina með bandarísku háskólaliðunum sínum. Helena og TCU unnu öruggan sigur á Air Force skólanum en María og félagar í UTPA máttu þola tap gegn Chicago State.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
08 02 2010 | 14:32
Sigur hjá Helenu en UTPA tapaði
TCU átti ekki í nokkrum vandræðum með Air Force skólann um helgina. Air Force mætti á Daniel Maeyer heimavöll TCU og lá þar 77-47. Þær Helena Sverrisdóttir og Delisa Gross voru stigahæstar í liði TCU með 17 stig. Helena var auk þess með 6 stolna bolta og 2 fráköst á þeim 23 mínútum sem hún lék í leiknum.
María Ben Erlingsdóttir skoraði 6 stig þegar UTPA skólinn lá gegn Chicago State 78-63. María var í byrjunarliðinu og lék í 34 mínútur í leiknum, tók 2 fráköst og var með 2 stoðsendingar.
Næsti leikur UTPA er á miðvikudag gegn Houston Baptist skólanum en næsti leikur TCU er gegn Utah á útivelli og fer hann einnig fram á miðvikudag.
- Verður það enn einn stórsigur nágrannans ?
- FSu sendir kanann heim
- Landsliðsþjálfari frá Spáni til Ísafjarðar
- UTPA í 2. sæti eftir deilarkeppnina í Great West deildinni
- Kobe klikkaði ekki í þetta skiptið - Enn ein sigurkarfan
- Ingi Þór: Fengum framlag og baráttu frá öllum
- Leikir dagsins: Leikið í unglingaflokki
- Hægt að breyta keppnisfyrirkomulaginu fyrir næsta tímabil!
- Útisigur hjá Sundsvall en Solna lá heima
- Leikdagar í undanúrslitum kvenna
Senda frétt
Prenta
Deila