Sá er öllu ræður í NBA deildinni, David Stern, sagði á blaðamannafundi í Taipei að ef leikvangaþróun í Evrópu myndi ganga í takt við það sem gerist í NBA deildinni þá gæti vel farið svo að lið í Evrópu væri í NBA deildinni. Stern var staddur í Taipei þar sem fyrsti sýningarleikur NBA liða á eyjunni fór fram aðfararnótt föstudags.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
10 10 2009 | 13:57
Stern sér NBA lið í Evrópu!
,,Svona sjáum við þróun körfuboltans í heiminum,“ sagði Stern og bætti við að NBA deildin hefði áform um að deildarleikur færi fram í London fyrir Ólympíuleikana 2012. Eini deildarleikur NBA deildarinnar utan Bandaríkjanna fór fram í Japan í kringum árið 1990.
Stern horfir ekki aðeins til Evrópu heldur nefndi einnig Suður-Ameríku og Afríku en áréttaði þó að leikvangaþróun yrði að vera NBA deildinni samboðin.
Hvort Stern og félagar í NBA deildinni hyggja á heimsyfirráð í körfuboltanum skal ósagt látið en þá skal engu að síður bent á að það er ýmislegt t.d. í Evrópuboltanum sem NBA mætti taka sér til fyrirmyndar svo aðlögunin, ef af þessu verður, ætti alls ekki að vera einhliða.
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila