NÝJUSTU ÚRSLIT...
Miami Heat lögðu Lakers í mögnuðum leik
05 03 2010 | 09:17
39 stig frá Kobe Bryant voru ekki nóg til að tryggja LA Lakers sigur í Miami í nótt þar sem heimamenn í Heat fögnuðu þriggja stiga sigri, 114-111, eftir framlengingu. Leikurinn var ótrúlega spennandi þar sem liðin skiptust á að leiða, en Heat voru í lykilstöðu þegar skammt var eftir af venjulegum leiktíma. Þeir höfðu átta stiga forskot og 3:40 eftir, en Lakers unnu sig upp aftur og það var enginn annar en Kobe sem tryggði sínum mönnum framlengingu með stökkskoti á síðustu sekúndum leiksins.
Fátt um óvænt úrslit í nótt - Níundi sigur Dallas í röð
04 03 2010 | 09:25
Stóru liðin í NBA unnu öll leiki sína í nótt þar sem topplið Cleveland vann botnlið New Jersey, Boston vann Charlotte, Denver vann Oklahoma Thunder, Orlando vann Golden State og Dalla Mavericks unnu sinn níunda sigur í röð þegar þeir lögðu Minnesota í spennandi leik.
Sigrar hjá Celtics og Lakers
03 03 2010 | 09:26
Stórlið Boston Celtics og LA Lakers unnu bæði leiki sína í NBA í nótt, Lakers unnu Indiana Pacers og Celtics unnu Detroit Pistons.
Það var nýjasti leikmaður Boston, troðslukóngurinn smávaxni Nate Robinson, sem leiddi þá til sigurs, með 14 stig af bekknum þegar útlit var fyrir að Detroit ætluðu að landa sigri. Detroit hefur nú tapað fjórum leikjum í röð eftir að hafa leitt í fjórða leikhluta í þeim öllum.
Iverson farinn frá Sixers - Er ferillinn á enda?
02 03 2010 | 17:06
Allen Iverson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Philadelphia 76ers, en leikmaðurinn og félagið ákváðu að leiðir myndu nú skilja á ný eftir þriggja mánaða dvöl hans.
Iverson, sem kom sér út úr húsi hjá Memphis Grizzlies í upphafi leiktíðar, sneri aftur til Philadelphia þar sem hann lék fyrstu tíu ár ferils síns, en eftir að hafa verið frá liðinu síðan 20. febrúar vegna veikinda dóttur sinnar var ákveðið að láta gott heita þar sem fjarveran var ekki að þjóna tilgangi liðsins.
Cavs rústuðu Knicks
02 03 2010 | 10:52
Cleveland Cavaliers jörðuðu NY Knicks í nótt og styrktu þar með stöðu sína á toppi NBA. LeBron James, sem Knicks hafa verið að sverma fyrir síðustu tvö árin, þurfti ekki einu sinni að stíga út á gólfið í lokaleikhlutanum þar sem munurinn á liðunum var orðinn 49 stig í þriðja leikhluta.
Á meðan unnu Orlando Magic, helstu keppinautar Cavs í Austurdeildinni, einnig góðan sigur á Philadelphia.
Myndasafn
Karfan TV
- Ezell besti leikmaður síðari hlutans
- Möguleg endalok IEX deild Karla
- Þrettándi sigur Dallas í röð - Stórt tap Celtics á heimavelli
- Verður það enn einn stórsigur nágrannans ?
- FSu sendir kanann heim
- Landsliðsþjálfari frá Spáni til Ísafjarðar
- UTPA í 2. sæti eftir deilarkeppnina í Great West deildinni
- Kobe klikkaði ekki í þetta skiptið - Enn ein sigurkarfan
- Ingi Þór: Fengum framlag og baráttu frá öllum
- Leikir dagsins: Leikið í unglingaflokki
Könnun
Ertu sammála um að bæta við reglunni þar sem ekki er hægt að fá ruðning á svæði undir körfunni ?
Mynd af handahófi



