NÝJUSTU ÚRSLIT...
Úrslit: Haukar og Keflavík í undanúrslit! (Uppfært)
08 03 2010 | 20:51
Subwaybikarmeistarar Hauka voru rétt í þessu að tryggja sér sæti í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna með 2-0 sigri á Grindavík í einvígi liðanna. Liðin mættust á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld þar sem Haukar fóru með 81-74 sigur af hólmi.
Myndasafn: Grindavík 0-1 Haukar
07 03 2010 | 10:07
Subwaybikarmeistarar Hauka tóku 1-0 forystu í einvígi sínu gegn Grindavík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deild kvenna. Liðin mættust í Röstinni í gær þar sem Haukar fóru með 82-88 útisigur af hólmi.
Haukar unnu í Grindavík
06 03 2010 | 16:44
Grindavík og Haukar áttust við í dag í Grindavík í úrslitakeppni Iceland Express-deild kvenna. Subwaybikarmeistararnir úr Haukum gerðu góða ferð suður með sjó og höfðu sigur 82-88 í skemmtilegum leik en hann var í beinni á UMFGtv.
Reynslusigur hjá Keflavík gegn Snæfelli - 1:0
05 03 2010 | 22:16
Keflavíkurstúlkur unnu reynslusigur á liði Snæfells í fyrsta umspilsleik liðanna í Iceland Express deildinni í Toyota höllinni í Keflavík í kvöld. Eftir hnífjafnan leik knúðu Keflvíkingar fram sigur á síðustu mínútunum. Lokatölurnar 95-82 sýna ekki rétta mynd af gangi leiksins sem var mjög skemmtilegur. Víkurfréttir, www.vf.is greinir frá.
Ingi og Jón klárir í slaginn
05 03 2010 | 15:10
Keflavík tekur á móti Snæfell í fyrstu viðureign liðanna í fyrstu umferð í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:15 í Toyotahöllinni í Reykjanesbæ en það lið sem fyrr vinnur tvo leiki kemst áfram í undanúrslitin. Karfan.is ræddi þjálfara liðanna fyrir leik kvöldsins þá Inga Þór Steinþórsson og Jón Halldór Eðvaldsson.
Myndasafn
Karfan TV
- Ingi Þór: Fengum framlag og baráttu frá öllum
- Leikir dagsins: Leikið í unglingaflokki
- Hægt að breyta keppnisfyrirkomulaginu fyrir næsta tímabil!
- Útisigur hjá Sundsvall en Solna lá heima
- Leikdagar í undanúrslitum kvenna
- Leikið í drengjaflokki í dag
- Jakob og Helgi á ferðinni í kvöld
- Þetta er lottóvinningur
- U15 ára drengja: 24 manna æfingahópur
- Helena leikmaður ársins í Mountain West deildinni
Könnun
Ertu sammála um að bæta við reglunni þar sem ekki er hægt að fá ruðning á svæði undir körfunni ?
Mynd af handahófi



