NÝJUSTU ÚRSLIT...
Logi: Erfitt að spila þrjá leiki á sex dögum
13 03 2010 | 14:49
Logi Gunnarsson og félagar í franska NM1 deildarliðinu St. Etienne eiga strangan pakka fyrir höndum sem hefst í dag þegar liðið mætir Maritime Boulogne á útivelli. Þar sem St. Etienne var dæmt niður um deild riðlaðist keppnisfyrikomulagið hjá félaginu og nú næstu daga verður liðið að vinna upp þá leiki sem eru óspilaðir og því leikur St. Etienne þrjá leiki á sex dögum!
Tvö mikilvæg stig í súginn hjá Sundsvall
13 03 2010 | 13:12
Þrír leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þar sem Jakob Örn og liðsfélagar í Sundsvall Dragons töpuðu tveimur mikilvægum stigum í toppbaráttu deildarinnar. Sundsvall tók á móti Södertalje á heimavelli sínum og mátti þola 79-89 ósigur.
Úrslitakeppnin hafin í Danmörku
11 03 2010 | 20:48
Úrslitakeppnin í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik er hafin og þar eru Íslendingar að láta að sér kveða. Í raun er að ræða um Íslendingaslag þar sem Bakken Bears og Horsens IC mætast í 8-liða úrslitum og Bakken hafa yfir 1-0 eftir 83-76 eftir fyrsta slag liðanna.
Útisigur hjá Sundsvall en Solna lá heima
09 03 2010 | 20:40
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið tryggði sér góðan útisigur en Helgi Magnússon gerði 5 stig fyrir Solna sem tapaði á heimavelli.
Jakob og Helgi á ferðinni í kvöld
09 03 2010 | 17:30
Heil umferð fer fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem landsliðsmennirnir Jakob Örn Sigurðarson og Helgi Magnússon verða í hamagangnum með sínum félögum. Helgi og Solnamenn eiga stórleik í vændum þar sem Plannja kemur í heimsókn í Solnahallen.
Myndasafn
Karfan TV
- Naumt á Ásvöllum
- Úrslit: KR 2-0 Haukar
- Spánartröllin mætast í 8-liða úrslitum
- Stúlknaflokkur fékk að kynnast kuldanum
- Leikir dagsins: KR-Haukar leikur 2
- Hættum við þyrluna á síðustu stundu
- Sundsvall í 3. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar
- Keflavík sýndu klærnar
- Leikdagar í úrslitakeppni 1. deildar karla
- Keflavík jafnaði einvígið
Könnun
Hvort liðið kemst í úrslit í IEX deild kvenna?
Mynd af handahófi




