NÝJUSTU ÚRSLIT...

IE kk: FSu 73-99 Tindastóll  |  IE kk: Keflavík 82-69 Njarðvík  |  IE kk: Breiðablik 74-73 Hamar  |  
Landsliðsþj...
Landsliðsþjálfari frá Spáni til Ísafjarðar
UTPA í 2. sæ...
UTPA í 2. sæti eftir deilarkeppnina í Great West deildinni
Leikir dagsins...
Leikir dagsins: Leikið í unglingaflokki
Hægt að brey...
Hægt að breyta keppnisfyrirkomulaginu fyrir næsta tímabil!
Þetta er lottóvinningur

Þetta er lottóvinningur

09 03 2010 | 15:48
 
,,Ég heyrði aðeins í honum í gær og hann var voðalega kátur, sagðist feginn að þetta væri frágengið og það lá vel á honum,“ sagði Páll Briem Magnússon í samtali við Karfan.is en sonur hans, Haukur Helgi Pálsson, hefur komist að munnlegu samkomulagi við bandaríska háskólann Maryland um að stunda þar nám og leika körfubolta næstu árin. Um svokallað munnlegt samkomulag er að ræða sem þykir nokkuð endanlegt í Bandaríkjunum og í því felst að Haukur ætli sér ekki að ræða við fleiri skóla.
U15 ára drengja: 24 manna æfingahópur

U15 ára drengja: 24 manna æfingahópur

09 03 2010 | 15:02
 
Ingi Þór, þjálfari U15 ára landsliðs drengja, hefur valið 24 manna hóp sem mun æfa samn fyrir alþjóðlegt mót í sem fer fram í Danmörku í byrjun júní. U15 ára liðið í fyrra tók þátt á Copenhagen Invitational-mótinu í fyrra og gerði sér lítið fyrir og sigraði á því móti. Einar Árni var þáverandi þjálfari. www.kki.is greinir frá.
Helena leikmaður ársins í Mountain West deildinni

Helena leikmaður ársins í Mountain West deildinni

09 03 2010 | 13:10
 
Helena Sverrisdóttir hefur verið útnefnd besti leikmaður ársins í Mountain West deildinni og þá hefur þjálfari hennar hjá TCU, Jeff Mittie, einnig verið útnefndur þjálfari ársins í deildinni. Enn ein rósin því komin í myndarlegt hnappagat Helenu sem hefur strax frá fyrsta degi með TCU vakið verðskuldaða athygli vestra.
Enginn Íslendingur farið í svona góðan skóla

Enginn Íslendingur farið í svona góðan skóla

09 03 2010 | 11:22
 
 
Íslendingar eru að eignast leikmann í einu af bestu karlaliðum bandaríska háskólaboltans. Hinn stórefnilegi Haukur Helgi Pálsson hefur nú gert munnlegt samkomulag við Maryland-háskólann, sem er einn af virtustu körfuboltaskólum Bandaríkjanna og varð meðal annars bandarískur meistari fyrir átta árum. Fréttablaðið ræðir í dag við Benedikt Guðmundsson um þessa stóru tilfærslu hjá Hauki Helga.
Öldungamót Þórs Akureyri

Öldungamót Þórs Akureyri

09 03 2010 | 09:55
 
 
Öldungamót á Akureyri: Að hætti Þórsbræðra Eiríks- og Jóhanns Sigurðssona. Mótið verður haldið laugardaginn 20. mars. Löglegir leikmenn eru 30 ára karlar og eldri, sem ekki hafa leikið í efstu og 1. deild á leikárinu.

Myndasafn

Breiðablik 74-73 Hamar Mars 2010
Keflavík - Njarðvík IEX Ka
Sjá öll myndasöfn

Karfan TV

Guðjón Skúlason: Keflavík
Ágúst Björgvins Mars 2010
Sjá öll myndbönd
Tölfræði safn KKÍ

Könnun

Ertu sammála um að bæta við reglunni þar sem ekki er hægt að fá ruðning á svæði undir körfunni ?

Nei

 

Mynd af handahófi