NÝJUSTU ÚRSLIT...

Þorleifur Vig...
Þorleifur Viggó tekur við Hetti og Viðar snýr heim
Heimasíða Þ...
Heimasíða Þórsara fær andlitslyftingu
Ari mun stýra...
Ari mun stýra Leikni í 1. deild
Darrell Flake ...
Darrell Flake til liðs við Skallagrím
Atli Örn til liðs við Blika

Atli Örn til liðs við Blika

23 07 2010 | 10:50
 
Atli Örn Gunnarsson, 24 ára körfuknattleiksmaður frá Flúðum, hefur skrifað undir 2 ára samning við körfuknattleiksdeild Breiðabliks og mun því leika með félaginu á næsta keppnistímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu Blika.
Sumarið og 1. deild: Valur

Sumarið og 1. deild: Valur

15 07 2010 | 13:09
 
Yngvi Gunnlaugsson og liðsmenn hans í Val hafa ekki setið auðum höndum í sumar og hafa notið liðsinnis styrktarþjálfara við undirbúninginn fyrir komandi leiktíð í 1. deild karla. Yngvi fór með Valsmenn í úrslitarimmu gegn Haukum um laust sæti í úrvalsdeild í úrslitakeppni 1. deildarinnar á síðasta tímabili. Haukar höfðu betur og skildu Valsmenn eftir í 1. deildinni, hlutskipti sem Valsmenn þekkja orðið af biturri reynslu en nú segir Yngvi að verið sé að snúa við blaðinu, tímabilið sé fyrst og fremst skemmtun og þannig komi árangurinn.
Sumarið og 1. deild: Þór Þorlákshöfn

Sumarið og 1. deild: Þór Þorlákshöfn

13 07 2010 | 15:30
 
Benedikt Rúnar Guðmundsson tók við Þór Þorlákshöfn að loknu síðasta tímabili og hafa strákarnir úr höfninni tekið fyrstu skrefin með nýja þjálfaranum. Við tókum púlsinn á Benna sem síðustu tvö ár gerði karla- og kvennalið KR að Íslandsmeisturum og skiljanlega því miklar vonir bundnar við komu hans til Þorlákshafnar.
Sumarið og 1. deild: Þór Akureyri

Sumarið og 1. deild: Þór Akureyri

08 07 2010 | 13:42
 
Í gærkvöldi bárust töluverðar fregnir að norðan þar sem Konrad Tota var kynntur til leiks sem spilandi þjálfari Akureyringa á næstu leiktíð og þá var Sigurður Grétar Sigurðsson ráðinn aðstoðarþjálfari Tota. Karfan.is tók púlsinn á Sigurði sem sagði körfuboltann eiga á brattann að sækja á Akureyri og að nú þyrftu menn að spýta í lófana.
Tota þjálfar Þór og Ólafur Torfa heim

Tota þjálfar Þór og Ólafur Torfa heim

07 07 2010 | 22:39
Það flaut blek um öll borð á Akureyri í kvöld þegar Þórsarar skrifuðu undir samning við þjálfara og leikmenn fyrir næsta vetur. Konrad Tota mun þjálfa liðið og verður Sigurður G. Sigurðsson honum til aðstoðar og þá skrifaði Ólafur Torfason undir samning og einnig var kunngert að Wesley Hsu kemur aftur. Frá þessu er grein á heimasíðu Þórs.
 

Myndasafn

Stjarnan-Keflavík Stjörnumót 1. sæti 2010
Breiðablik-ÍR Stjörnumót 3. sæti 2010
Sjá öll myndasöfn

Karfan TV

Lebron á ESPN
Jón Arnór: Duglegur í sumar
Sjá öll myndbönd
Tölfræði safn KKÍ

Könnun

Ætlar þú að taka þátt í sumardeild KKÍ á næsta ári?

Nei

Kannski

 

Mynd af handahófi