NÝJUSTU ÚRSLIT...
Leikdagar í undanúrslitum kvenna
09 03 2010 | 20:24
Þá liggur fyrir hverjir leikdagarnir verða í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna. Annarsvegar mætast KR og Subwaybikarmeistarar Hauka og hinsvegar Hamar og Keflavík. KR hefur heimavallaréttinn gegn Haukum og Hamar hefur heimavallaréttinn gegn Keflavík. Hamar og Keflavík ríða á vaðið næsta laugardag er liðin mætast í Hveragerði kl. 15:00 og á sunnudag mætast KR og Haukar í DHL-Höllinni kl. 19:15.
Leikið í drengjaflokki í dag
09 03 2010 | 18:15
Þrír leikir eru á dagskránni í drengjaflokki í dag. Tveir á höfuðborgarsvæðinu og einn í höfuðstað Norðurlands, Akureyri, þar sem heimamenn í Þór taka á móti ÍBV kl. 19:00 í Síðuskóla.
Jakob og Helgi á ferðinni í kvöld
09 03 2010 | 17:30
Heil umferð fer fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem landsliðsmennirnir Jakob Örn Sigurðarson og Helgi Magnússon verða í hamagangnum með sínum félögum. Helgi og Solnamenn eiga stórleik í vændum þar sem Plannja kemur í heimsókn í Solnahallen.
Þetta er lottóvinningur
09 03 2010 | 15:48
,,Ég heyrði aðeins í honum í gær og hann var voðalega kátur, sagðist feginn að þetta væri frágengið og það lá vel á honum,“ sagði Páll Briem Magnússon í samtali við Karfan.is en sonur hans, Haukur Helgi Pálsson, hefur komist að munnlegu samkomulagi við bandaríska háskólann Maryland um að stunda þar nám og leika körfubolta næstu árin. Um svokallað munnlegt samkomulag er að ræða sem þykir nokkuð endanlegt í Bandaríkjunum og í því felst að Haukur ætli sér ekki að ræða við fleiri skóla.
U15 ára drengja: 24 manna æfingahópur
09 03 2010 | 15:02
Ingi Þór, þjálfari U15 ára landsliðs drengja, hefur valið 24 manna hóp sem mun æfa samn fyrir alþjóðlegt mót í sem fer fram í Danmörku í byrjun júní. U15 ára liðið í fyrra tók þátt á Copenhagen Invitational-mótinu í fyrra og gerði sér lítið fyrir og sigraði á því móti. Einar Árni var þáverandi þjálfari. www.kki.is greinir frá.
Leikir í beinni
Myndasafn
Karfan TV
- Ingi Þór: Fengum framlag og baráttu frá öllum
- Leikir dagsins: Leikið í unglingaflokki
- Hægt að breyta keppnisfyrirkomulaginu fyrir næsta tímabil!
- Útisigur hjá Sundsvall en Solna lá heima
- Leikdagar í undanúrslitum kvenna
- Leikið í drengjaflokki í dag
- Jakob og Helgi á ferðinni í kvöld
- Þetta er lottóvinningur
- U15 ára drengja: 24 manna æfingahópur
- Helena leikmaður ársins í Mountain West deildinni
Könnun
Ertu sammála um að bæta við reglunni þar sem ekki er hægt að fá ruðning á svæði undir körfunni ?
Mynd af handahófi



